Partnermeeting at Hvolsvöllur 2011
Dagana 13.-15. janúar 2011 var haldinn árlegur félagsfundur SSF á Sögusetrinu á Hvolsvelli. Þar voru lagðar línur fyrir starf ársins. Auk þess var haldið opið málþing á föstudeginum kl. 16-18. Fundurinn og málþingið fór fram á Hótel Hvolsvelli en einnig var farið í skoðunarferðir til sunnlenskra sögustaða. Sjá nánar í meðfylgjandi dagskrá.
Í fundarlok var undirritaður samstarfssamningur Iðnaðarráðherra. Katrín Júlíusdóttir, og formaður SSF, Rögnvaldur Guðmundsson, innsigluðu þar samning til eins árs um stuðning við starf samtakanna. Samningurinn felur í sér 2 m.kr. fjárframlag frá ráðuneytinu til viðbótar við þær 1,7 m.kr. sem samtökin fá gegnum fjárlög 2011. Auk þess fá samtökin starfsmann inni á Ferðamálastofu til að sinna málefnum SSF í 25% starfi.







