Marketing abroat
Samtökin vinna að auknum heimsóknum erlendra ferðamanna til félagsmanna. Bæði er það gert með því að ná til þeirra sem þegar koma til Íslands, með því að kynna fyrir þeim starfseminna, einkum með útgáfu og dreifingu bæklinga og auglýsingum í tímaritum fyrir ferðamenn innanlands. En einnig vinna samtökin að því að kynna starfsemina fyrir ferðaskrifstofum, blaðamönnum og hópum erlendis og hvetja þannig til aukinna heimsókna til Sögulandsins Íslands. Árið 2009 skipulögðu samtökin mótttöku blaðamanna frá Bretlandi, Þýskalandi og Norðurlöndunum og kynnti fyrir þeim valdar söguslóðir á Íslandi. Upplýsingar um ferðirnar og skrif má sjá í meðfylgjandi greinum (kemur síðar).






