Samningur við iðnaðarráðherra
There are no translations available.

Samtökin héldu félagsfund að Hvolsvelli dagana 13.-15. janúar sl. Á fundinum voru línur lagðar fyrir starfið á árinu með góðri vinnu í hópum sem tóku á nýsköpun og vöruþróun, kynningar-, fræðslu- og gæðamálum. Félagsmenn brugðu sér síðan að Skógum og fengu leiðsögn hjá Þórði Tómassyni auk þess sem Sögusetrið var heimsótt og snæddur kvöldverður í veislusalnum þar.
Í fundarlok, laugardaginn 15. jan., var undirritaður samstarfssamningur Iðnaðarráðherra.
Katrín Júlíusdóttir, og formaður SSF, Rögnvaldur Guðmundsson, innsigluðu þar samning til eins árs um stuðning við starf samtakanna. Samningurinn felur í sér 2 m.kr. fjárframlag frá ráðuneytinu til viðbótar við þær 1,7 m.kr. sem samtökin fá gegnum fjárlög 2011. Auk þess fá samtökin starfsmann inni á Ferðamálastofu til að sinna málefnum SSF í 25% starfi.





