New employees of ISTA

Samtökin hafa fengið starfskrafta til liðs við sig.
Sigrún Hlín Sigurðardóttir, sem er starfsmaður Ferðamálastofu, hefur nú hafið störf fyrir SSF í 25% starfshlutfalli. Hún mun m.a. koma að eflingu samskipta við ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur innanlands sem erlendis, gæðamálum SSF, vinna að blaðamannaferðum fyrir samtökin og úttekt á möguleikum söguslóðaferða á Íslandi.  

Þá hefur stjórn SSF gert verkefnasamning við Pétur Jónsson. Pétur mun hafa umsjón með útgáfu bæklinga SSF á árinu, lagfæringum og þróun á heimasíðu samtakanna, vinna að undirbúningi "Söguslóða 2011" í Norræna Húsinu 29.-30. apríl komandi og útvarpsauglýsingum sumarið 2011.

Auk þessara verkefna má nefna að stjórnin er að skoða möguleikana á útgáfu vandaðs CD disks og einnig er stefnt að öflugri þátttöku samtakanna á  bókamessunni í Frankfurt í október.


IcelandicEnglishDeutschNorskFrench (Fr)

The Icelandic Saga Trail Association / www.sagatrail.is / info@sagatrail.is