Samtök um söguferða-þjónustu (SSF) eru samvinnu- og samráðs-vettvangur þeirra er stunda söguferðaþjónustu á Íslandi.
Samtökin leggja áherslu á arfleið íslenskra miðaldabókmennta, fyrstu aldir Íslandsbyggðar og miðaldamenningu, þ.e. tímabilið frá landnámi og fram að siðaskiptum 1550. Samtökin kynna starfsemi félagsmanna, vinna að aukinni samvinnu og fagmennsku, standa fyrir ráðstefnum og félagsfundum, koma á fræðsluferðum og námskeiðum og vinna almennt að eflingu söguferðaþjónustu á Íslandi. Á síðunni er að finna margvíslegar upplýsingar um starfsemi samtakanna og félagsmanna sem eru um 80 talsins.




